
Allir giftingahringar frá Sigga & Timo eru handsmíðaðir á verkstæði okkar í Hafnarfirði.
Í boði eru hringar úr 14 og 18 karata gulli og hvítagulli, 925 silfri, 950 platínu,950 palladín og títan.Auk úrvals sem er til sýnis í verslun okkar, smíðum við einnig eftir óskum viðskiptavina.
Gerum teikningar og verðtilboð.Innifalið er áletrun inni hringa, handáletrum lika utaná hringa ef þess sé óskað.
Með eða án demanta getum við aðstoðað ykkur,erum sérfræðingar í demöntum og ísetningu þeirra.
Við val á pörum þarf að muna að þykkt hringana skiptir jafn miklu máli og breidd.Það hefur áhrif á styrkleika og verð.
Td. 5mm breitt par sem er 1.0mm þykkt er helmingi ódyrara en par sem er 5mm breitt og 2mm á þykkt.
Hönnunin og handverkið veitir okkur gleði og við leitumst við að færa hana alla leið til þess sem skartið eignast, fyrir okkur eru verkin ekki bara vinna heldur lífsstíll. Við erum til reiðu fyrir viðskiptavinina þegar þess er óskað, í búðinni eða við hönnun og smíðar.
Kveðja, Sigga & Timo