sigga_timo_okkurv3

Allt frá hugmynd og hönnun… til þín sem skartið ber

Hjá Siggu og Timo tekurðu þátt í óslitnu ferli. Við hönnum, smíðum, sýnum og seljum gripina okkar á einum og sama stað. Ferlið er stutt. Við leggjum okkur fram við að skapa andrúmsloft þar sem skartið, innrétting búðarinnar, þjónustan og viðhorf okkar til gull- og silfursmíða mynda heild.

Fyrir okkur er skartgripur hugmynd smiðsins, sem er breytt í varanlegt efni, og eigandinn gerir að sinni. Eigandinn lýsir hug sínum með skartinu. Hún eða hann leggur áherslu á persónu sína með gripnum og tjáir tilfinningar, rifjar upp minningar eða minnist örlagaríkra ákvarðana. Skartgripur sem gegnir slíku hlutverki er vel heppnaður.

Hönnunin og handverkið veitir okkur gleði og við leitumst við að færa hana alla leið til þess sem skartið eignast, fyrir okkur eru verkin ekki bara vinna heldur lífsstíll. Við erum til reiðu fyrir viðskiptavinina þegar þess er óskað, í búðinni eða við hönnun og smíðar.

Fersk og vönduð hönnun… falleg hönnun

Skartgripur sameinar oftast fegurð og glæsileika, hvort sem er í einfaldleika sínum eða sem flókin smíði. Sem betur fer er fegurðarskyn og smekkur fólks afar persónubundinn. Okkar er að takast á við þá áskorun með brosi á vör.

Við búum til staka gripi eða hönnum skartseríur, til dæmis eyrnalokkar, hringa, hálsmen, armbönd og fleira, allt eftir sömu grunnhugmynd.

Við lærum… meðan við lifum

Gullsmíðar þróast og við tökum þátt í breytingunum. Við teljum mikils virði að hafa getað sameinað íslenska og finnska skartsmíðahefð í einn stað og eiginn frumleika og hjartans áhugamál í annan stað… og hafa fengið jafn góðar viðtökur og raun ber vitni.

Við fylgjumst með nýjungum í hönnnun og tileinkum okkur nýja tækni og fullkomnari verkfæri. Auk þess treystum við erlend sambönd. Finnskir gullsmiðir hafa unnið hjá okkur og kennt okkur margt nýtt, líkt og bandarískir eða finnskir félagar og vinir með sama brennandi áhuga og við. Svo kennum við íslenskum gullsmíðanemum en það opnar enn aðrar víddir.

Gullið tækifæri… samtarf við þig

Dvölin og vinnan á Íslandi hefur gert okkur kleift að þróst og dafna í starfi. Okkur hefur ekki aðeins verið vel tekið heldur fáum við dýrmætar ábendingar og óskir frá mörgum viðskiptavinum. Þeir taka líka oft þátt í hönnun pantaðra skartgripa. Það gefur þeim nýtt og persónulegt yfirbragð, og bæði við og viðskiptavinirnir hafa eignast enn meira í skartinu en margan grunar.

Við erum hjá S&T… fyrir þig

Starfsfólk fyrirtækisins er mikilvægasta auðlind þess, og í litlu, metnaðarfullu handverksfyrirtæki verður hópurinn líkur fjölskyldu, ef allt gengur upp.

Sigga & Timo
á facebook