Trúlofunarhringar og giftingarhringar frá Sigga & Timo eru handsmíðaðir á verkstæði okkar í Hafnarfirði.
Verð miðast við parið. Í boði eru trúlofunarhringar og giftingarhringar úr 14 og 18 karata gulli og hvítagulli, 925 silfri og 950 platínu. Auk úrvals sem er til sýnis í verslun okkar, smíðum við einnig eftir óskum viðskiptavina.
Trúlofunarhringar og giftingarhringar eru með áletrun innifalin, getum laseráletrað flest allar tegundir af letri, innan sem utan á hringa. Handáletrum utan á hringa ef þess sé óskað. Sjá Persónulegt
Með eða án demanta, erum sérfræðingar í demöntum og ísetningu þeirra. Demantar í mismunandi stærð, lit og gæðum, við getum aðstoðað ykkur við valið. Grunnverð á giftingarhringum fer eftir efni, breidd, þykkt og fingrastærð. Sjá Teikningar & Tilboð
